ÍBV 0 - 1 Stjarnan
0-1 Birta Georgsdóttir ('49)
0-1 Birta Georgsdóttir ('49)
Stjarnan og ÍBV mættust í Lengjubikar kvenna í dag, í leik sem fram fór í Kórnum í Kópavogi.
Það var aðeins eitt mark sem skildi liðin að. Það gerði Birta Georgsdóttir, fædd árið 2002, snemma í seinni hálfleik.
Markið gerði Birta eftir að hafa fengið stungusendingu, hún fór fram hjá markverðinum og kláraði vel úr erfiðu færi.
Lokatölur voru því 1-0 fyrir Stjörnuna sem er með sex stig úr fjórum leikjum. Liðið hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur. Vestmannaeyingar hafa á meðan unnið einn og tapað þremur.
Birta Georgsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir mfl. Stjörnunnar þegar hún skoraði sigurmark liðsins gegn ÍBV í 1-0 sigri í Lengjubikarnum. Vel gert! pic.twitter.com/mAcs7xsZ4A
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) March 18, 2018
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir