Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. mars 2018 18:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn B-deild: Dalvík/Reynir á sigurbraut
Sveinn Margeir kom Dalvík/Reyni á bragðið.
Sveinn Margeir kom Dalvík/Reyni á bragðið.
Mynd: Dalvík/Reynir
Álftanes 1 - 2 Dalvík/Reynir
0-1 Sveinn Margeir Hauksson ('19)
0-2 Angantýr Máni Gautason ('36)
1-2 Davíð Scheving Thorsteinsson ('37)

Sveinn Margeir Hauksson sem kom til Dalvíkur/Reynis á dögunum frá KA kom liðinu yfir gegn Álftanesi í B-deild Lengjubikarsins í dag. Sveinn Margeir, sem 16 ára, skoraði fyrsta markið á 19. mínútu.

Leikið var í Akraneshöllinni en næsta mark leiksins lét sjá sig á 36. mínútu þegar Angantýr Máni Gautason skoraði annað mark Dalvíkinga. Tveggja marka forystan entist ekki lengi því Davíð Scheving Thorsteinsson minnkaði muninn í næstu sókn.

Staðan var 2-1 í hálfleik en það gerðist lítið markvert í seinni hálfleiknum og var lokaniðurstaðan 2-1 sigur Dalvíkur/Reynis.

Þetta var fyrsti sigur Dalvíkinga í tveimur leikjum og hefur liðið nú þrjú stig í riðli 3 í B-deildinni. Álftanes er með sex stig að fjórum leikjum loknum. Liðið á bara eftir að spila við Tindastól.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner