Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. mars 2018 12:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho tók Shaw af velli í hálfleik - Ekki sáttur með hann
Shaw var tekinn af velli í hálfleik í gær.
Shaw var tekinn af velli í hálfleik í gær.
Mynd: Getty Images
,,Þetta var versti leikur Scott síðan hann kom upp í aðalliðið.
,,Þetta var versti leikur Scott síðan hann kom upp í aðalliðið.
Mynd: Getty Images
„Í hvert skipti sem þeir keyrðu á Luke náðu þeir fyrirgjöfinni. Ég var ekki sáttur með hans frammistöðu," sagði Jose Mourinho eftir 2-0 sigur á Brighton í enska bikarnum í gær.

Shaw byrjaði leikinn í vinstri bakverðinum en var skipt af velli fyrir Ashley Young í hálfleik.

Það er orðið nokkuð ljóst að Mourinho treystir Shaw ekki mikið, hann treystir að minnsta kosti Ashley Young meira.

Paul Scholes, fyrrum leikmaður Man Utd, hefur mikið álit á Shaw en hann talaði um leikmanninn eftir leikinn í gær.

„Ég trúi því enn að hann geti orðið einn sá besti í heimi. Í sumar gæti hann farið til Tottenham eða eitthvert annað og bætt sig," sagði Scholes á BT Sport.

„Hann hefur ekki hrifiið knattspyrnustjórann, því miður. Stundum fá stjórar það inn í höfuðið á sér að einhver leikmaður sé ekki fyrir þá."

Gagnrýndi líka McTominay
Mourinho gagnrýndi ekki bara Luke Shaw í gær. Scott McTominay fékk líka sinn skammt af gagnrýni. Mourinho hefur verið þekktur fyrir það í gegnum tíðina að gagnrýna sína eigin leikmenn.

„Nokkrir leikmenn voru hræddir við að spila," sagði Mourinho.

„Þegar sólin skín og þú vinnur leiki, þá eru allir leikmenn góðir og hafa sjálfstraust til að spila. Þegar það er dimmt og kalt í veðri, og úrslitin kannski ekki þau bestu, þá eru ekki allir með sjálfstraustið eða persónuleikann til að spila."

Mourinho hefur vanalega verið duglegur að hrósa McTominay, sem er 21 árs, en ekki í þetta skiptið.

„Þetta var versti leikur Scott síðan hann kom upp í aðalliðið. En hann er klárlega Manchester United leikmaður, hann gerði mörg mistök en hann er með stóran persónuleika."



Athugasemdir
banner
banner
banner