Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 18. mars 2018 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Salah bað Karnezis afsökunar eftir fernuna
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah er búinn að vera funheitur á tímabilinu og skoraði fernu í 5-0 sigri gegn Watford um helgina.

Salah var kátur að leikslokum en fann til með Orestis Karnezis, markverði Watford á láni frá Udinese, og bað hann afsökunar.

Karnezis horfði á Salah og brosti, en mörkin voru vissulega ekki markverðinum að kenna.

Hægt er að sjá stiklu af atvikinu hér fyrir neðan, en Liverpool er í þriðja sæti eftir sigurinn og er Salah markahæstur með 28 mörk, fjórum meira en Harry Kane.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner