sun 18. mars 2018 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pochettino: Við erum á leið í undanúrslitin af því að við vorum betri
Mynd: Getty Images
Tottenham fór til Wales í gær þar sem þeir mættu Swansea í ensku bikarkeppninni, þessi leikur var hluti af 8-liða úrslitum keppninnar sem fara fram um helgina.

Lundúnaliðið var ekki í neinum vandræðum með Swansea og unnu 3-0, þar sem Eriksen skoraði tvö og Lamela eitt.

„Þetta var frábær frammistaða hjá okkur í dag, ég er virkilega sáttur með þetta. Næst eru það undanúrslitin á Wembley," sagði Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri Tottenham.

„Þessi sigur var algjörlega verðskuldaður, við spiluðum mjög vel. Auðvitað þegar maður skorar snemma þá er auðveldara að stjórna leiknum eins og við gerðum."

„Fyrir mig er það miklvægast að við áttum sigurinn skilið og við spiluðum miklu betur. Við erum á leið í undanúrslitin af því að við vorum betri," sagði Pochettino.
Athugasemdir
banner
banner