Mohamed Salah átti frábæran leik gegn Watford í gær þar sem hann skoraði fjögur mörk í 5-0 sigri og lagði upp eitt.
Salah átti fjögur skot á markið í gær og í öll skiptin fór boltinn í netið.
Það þarf að leita til baka til ársins 2009 til að finna leikmann sem afrekaði það sama og Salah gerði í gær.
Það var Rússinn Andrey Arshavin sem lék með Arsenal á árunum 2009 til 2013.
Arshavin skoraði mörkin fjögur í 4-4 jafntefli við Liverpool í apríl 2009.
4 - Mo Salah today became the first player to score four goals from exactly four shots in a Premier League game since Andrey Arshavin for Arsenal at Liverpool in April 2009. Awesome. pic.twitter.com/Oxhp2k0vBN
-- OptaJoe (@OptaJoe) March 17, 2018
Athugasemdir