Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. mars 2018 14:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Glæsimark Batshuayi nóg fyrir Dortmund
Batshuayi fagnar hér marki sínu.
Batshuayi fagnar hér marki sínu.
Mynd: Getty Images
Borussia D. 1 - 0 Hannover
1-0 Michy Batshuayi ('24 )

Michy Batshuayi skoraði virkilega fallegt mark er hann tryggði Borussia Dortmund sigur á Hannover 96 í dag.

Eftir hornspyrnu var Batshuayi mættur á nærstöngina. Hann ákvað að láta vaða með hælnum og endaði boltinn í netinu. Markið var svo sannarlega glæsilegt hjá belgíska framherjanum.

Markið kom á 24. mínútu en það var ekki mikið sem gerðist eftir. Dortmund tókst að sigla sigrinum heim.

Dortmund er í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi frá Schalke 04 sem er í öðru sæti. Hannover er í 13. sæti.



Athugasemdir
banner