Það eru þrír leikir á dagskrá þýsku Bundesligunnar í dag og þar á meðal annars topplið Bayern Munchen leik.
Í fyrsta leik dagsins mætir Hannover í heimsókn til Dortmund, en flautað verður til leiks 12:30. Heimamenn eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en gestirnir hins vegar í neðri hluta deildarinnar.
Köln sem er á botni deildarinnar fær Leverkusen í heimsókn sem er í Meistaradeildarbaráttu.
Lokaleikur dagsins er svo viðureign Leipzig og Bayern Munchen, gestirnir við það að verða þýskir meistarar en þeir eru með 20 stiga forskot á liðið í öðru sæti, Schalke. Leipzig er í sjötta sæti deildarinnar.
Sunnudagur 18. mars
12:30 Dortmund - Hannover
14:30 Köln - Leverkusen
17:00 Leipzig - Bayern (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir