Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. apríl 2014 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Pellegrini er alveg viss um að hin liðin misstígi sig
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini segist vera alveg viss um að lið í kringum Manchester City í titilbaráttunni eigi eftir að tapa stigum í lokaumferðum tímabilsins.

Man City gerði jafntefli við botnlið Sunderland á Etihad í síðustu umferð og er nú sex stigum frá toppliði Liverpool, en með leik til góða.

,,Ég er alveg viss um að hin liðin munu missa stig rétt eins og við gerðum í síðasta leik," sagði Pellegrini við fréttamenn.

,,Við höfum 15 stig til að spila um og við sjáum til í lokin hvaða lið hampar titlinum"
Athugasemdir
banner
banner