Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 18. apríl 2014 15:13
Brynjar Ingi Erluson
Stuðningsmaður Barca við Messi: Þú hreyfir þig minna en Pinto
Lionel Messi
Lionel Messi
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona á Spáni, varð fyrir heldur óvenjulegri upplifun er liðið lenti í Barcelona eftir bikarúrslitaleikinn gegn Real Madrid en einn stuðningsmaður Barcelona móðgaði hann.

Messi var afar slakur í úrslitaleik spænska konungsbikarsins er liðið tapaði fyrir Real Madrid.

Stuðningsmenn Barcelona tóku á móti liðinu er það kom til Barcelona og ákvað einn stuðningsmaðurinn að reyna að pirra Messi, sem honum tókst.

Hann sagði að argentínski leikmaðurinn þyrfti að fá sér orkudrykk því hann væri að hreyfa sig minna en Jose Pinto, markvörður Barcelona. Messi var allt annað en sáttur og fór í létta störukeppni við stuðningsmanninn en ákvað að gera þó ekki mikið meira úr málinu,


Athugasemdir
banner
banner
banner