Tveir leikir fara fram í ítalska boltanum í dag en Juventus mætir Lazio í síðari leiknum þar sem ítalska meistaraliðið getur styrkt stöðu sína á toppnum.
Sampdoria fær Cesena í heimsókn í fyrri leik dagsins en Hörður Björgvin Magnússon, er á láni frá Juventus hjá Cesena. Hann verður þó að öllum líkindum ekki með í dag þar sem hann er að jafna sig af meiðslum.
Juventus mætir þá Lazio í hörkuleik en Lazio hefur spilað feykilega vel að undanförnu og má þv í búast við öflugum leik þar sem Juventus vill ekki misstíga sig í kapphlaupinu um titilinn.
Leikir dagsins:
16:00 Sampdoria - Cesena
18:45 Juventus - Lazio
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir