Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. apríl 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Everton biður stuðningsmenn að gefa Stóra Sam einkunn
Sam Allardyce.
Sam Allardyce.
Mynd: Getty Images
Everton hefur sent út skoðannakönnun til stuðningsmanna þar sem þeir eru beðnir um að gefa stjóranum Sam Allardyce einkunn á skalanum 1-10.

Stóri Sam tók við Everton af Ronald Koeman í nóvember síðastliðnum.

Sam hefur komið Everton af fallsvæðinu upp í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en hann hefur náð í 27 stig í 20 leikjum.

Stuðningsmenn Everton eru hins vegar ekki allir ánægðir með leikstíl Sam og hann hefur legið undir gagnrýni að undanförnu.

Farhad Moshiri, eigandi Everton, gæti skoðað stjóramálin í sumar en Marco Silva, fyrrum stjóri Watford, og Paulo Fonseca þjálfari Shakhtar Donetsk hafa báðir verið orðaðir við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner