Les Herbiers úr frönsku C-deildinni hefur tryggt sér sæti í bikarúrslitunum þar í landi.
Les Herbiers lagði Chambly 2-0 í undanúrslitum í gær en síðarnefnda liðið er einnig úr 3. deild.
Les Herbiers lagði Chambly 2-0 í undanúrslitum í gær en síðarnefnda liðið er einnig úr 3. deild.
Florian David og Ambroise Gboho skoruðu mörkin við mikinn fögnuð stuðningsmanna Les Herbiers.
Les Herbiers mætir PSG eða Caen í úrslitum á Stade de France þann 8. maí en það skýrist í kvöld hvort liðið það verður.
Síðasta lið úr C-deild til að fara í bikarúrslit í Frakklandi var Quevilly árið 2012 en það tapaði 1-0 gegn Lyon í úrslitaleik.
French 3rd tier side Les Herbiers have reached the French Cup final🎉🎉
— That Stat Football (@That_Stat_) April 18, 2018
They beat fellow 3rd tier side Chambly 2-0 to set up a potential final with PSG on May 8th #CDF #PSG #LesHerbiers pic.twitter.com/xbP0c83mOv
Athugasemdir