mið 18. apríl 2018 21:05
Ingólfur Stefánsson
Mourinho: Pogba spilaði vel
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stjóri Manchester United var sáttur eftir 2-0 sigur liðsins gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Mourinho lét leikmenn sína heyra það eftir 1-0 tap gegn WBA um síðustu helgi en hann var ánægður með það hvernig þeir brugðust við í kvöld.

„Leikmennirnir stóðu sig vel í kvöld. Þetta var góð frammistaða. Við vildum skora og við vörðumst vel gegn hröðu liði."

„Þetta var einfalt hjá okkur og hlutirnir gengu hratt fyrir sig. Leikmenn voru á réttum stöðum og voru ekki að reyna of mikið. Allt var gott, ég er ánægður."


United mæta Tottenham í undanúrslitum FA bikarsins næsta laugardag og Mourinho segir að margir hafi gert tilkall til byrjunarliðssætis í þeim leik.

„Allir leikmenn liðsins spiluðu vel og gerðu sig líklega fyrir laugardaginn. Ég er ekki mikið fyrir að velja mann leiksins, ég er ekki aðdáandi þess, en Paul Pogba spilaði mjög vel. Á móti City var hann stórkostlegur en í dag var hann mjög, mjög góður. Góður kostur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner