Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. apríl 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Wigan byrjaði leikinn á meðan hitt liðið var utan vallar
Mynd: Getty Images
Óvenjulegt atvik átti sér stað í upphafi síðari hálfleiks í leik Wigan og Oxford í ensku C-deildinni í gær.

Leikmenn Wigan höfðu beðið í þrjár mínútur eftir að byrja leikinn á miðju á meðan leikmenn Oxford voru að gera æfingar á hliðarlínunni.

Trevor Kettle, dómari leiksins, flautaði leikinn á og Wigan hóf leik. Leikmenn Wigan ætluðu að skora í autt markið þegar Kettle flautaði aftur.

Leikmenn Oxford komu þá hlaupandi inn á og Kettle skammaði fyrirliða þeirra eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Wigan hafði á endanum betur 1-0 með marki Will Grigg en liðið er á góðri leið með að fara aftur upp í Championship deildina.



Athugasemdir
banner
banner