Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 18:26
Fótbolti.net
1. deild kvenna: Fylkir og ÍA byrja á sigrum
Hanna María skoraði fyrsta mark 1.deildarinnar í ár
Hanna María skoraði fyrsta mark 1.deildarinnar í ár
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keppni í 1. deild kvenna hófst í dag með tveimur leikjum í A-riðli. Fylkir vann 2-0 sigur á Tindastól í Árbænum og ÍA fór létt með BÍ/Bolungarvík og vann 9-0 sigur í Akraneshöllinni.

Fylki og ÍA var spáð tveimur efstu sætum riðilsins af sérfræðingum Fótbolta.net og það er ljóst að liðin ætla að láta að sér kveða í sumar.

Fylkir 2-0 Tindastóll
1-0 Hanna María Jóhannsdóttir ('27)
2-0 Rut Kristjánsdóttir ('37)

ÍA 9-0 BÍ/Bolungarvík
1-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('5)
2-0 Emilía Halldórsdóttir ('10)
3-0 Unnur Ýr Haraldsdóttir ('29)
4-0 Emilía Halldórsdóttir ('36)
5-0 Eyrún Eiðsdóttir ('51)
6-0 Alexandra Björk Guðmundsdóttir ('65)
7-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('73)
8-0 Emilía Halldórsdóttir ('77)
9-0 Sjálfsmark
Slapp
banner
banner