,,Þetta var fyrst og fremst gott stig hérna í Boganum gegn sterku liði KA. Við sýndum mikinn karakter með því að kreysta fram mark í lokin," sagði Ágúst Þór Gylfason eftir jafntefli Fjölnis og KA á Akureyri í dag.
,,Við spiluðum skynsamlega og lögðum okkur alla fram og uppskárum eftir því þannig ég get ekki verið annað en sáttur með eitt stig."
,,Við vissum svo sem ekki mikið um KA-liðið nema að þeir eru mjög sterkir bæði varnar- og sóknarlega. Því lögðum við upp með að liggja neðarlega og nýta þau færi sem við fengjum. Venjulega keyrum við á andstæðinginn og höldum boltanum vel en ekki í þessum leik. Í dag ákváðum við að sýna að við getum varist og við gerðum það. Svo tókst okkur að koma boltanum í gegnum sterka vörn KA sem er gott veganesti inn í næsta leik."
,,Þórður fékk eitthvað í lærið og þurfti skiptingu en við erum með tvo jafngóða markmenn svo það kom ekki að sök. Eina var að ég sá eftir skiptingunni sem fór í Þórð."
,,Næsti leikur er á heimavelli gegn Víkingi þannig það er líklegt að við munum spila aðeins hærra á vellinum og sækja. En við viljum stjórna leikjum og við verðum á heimavelli þannig ætli það verði ekki uppleggið."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.
























