Andrea Pirlo, leikmaður Juventus, hefur gert lítið úr orðrómunum sem tengja hann við Real Madrid.
Þessi 33 ára miðjumaður er talinn einn sá besti í sinni stöðu í Evrópu og er sagður vera á óskalista Carlo Ancelotti, fyrrverandi þjálfara sínum hjá AC Milan, sem kemur til greina sem næsti þjálfari Real Madrid

,,Þetta eru orðrómar sem hafa verið í gangi á síðustu klukkutímum, en ég er með samning hjá Juventus," sagði Pirlo.
,,Ég er ánægður hérna, við erum að vinna hluti og viljum vinna aftur. Ég held að það séu engin vandamál í gangi."
Á meðan hugsar Pirlo ekkert um að leggja skóna á hilluna og stefnir á að spila á HM á næsta ári. Eftir það mun hann hætta með landsliðinu.
,,Ég hef ekki hugsað um að hætta í fótbolta. Ég met stöðuna eftir hverja leiktíð. Þegar mér finnst ég ekki vera lengur upp á mitt besta, þá hætti ég," sagði hann.