Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Carragher væri til í að þjálfa í framtíðinni
Jamie Carragher er að leggja takkaskóna á hilluna og leikur sinn síðasta leik í Liverpool-treyju gegn QPR á sunnudaginn.

Hann segir þetta ekki endilega vera sitt síðasta á vellinum þar sem hann býst við að snúa aftur í nýrri stöðu ef hann saknar innsta hrings knattspyrnunnar of mikið.

,,Ég er viss um að ég mun sakna þess að vera kringum völlinn, ég elska búningsklefann og ég elska að gera mig tilbúinn í stóra leiki," sagði Carragher.

,,Það er ekkert betra en að vera sigursæll með vinum sínum, þetta hafa verið frábærir tímar fyrir okkur.

,,Það er mjög erfitt að hætta og sérstaklega erfitt að finna eitthvað nýtt að gera í staðinn, eitthvað nýtt sem getur fyllt í skarðið.

,,Það sem kemst næst því að vera leikmaður er örugglega að vera þjálfari eða knattspyrnustjóri. Ef ég mun sakna vallarins of mikið þá mun ég líklega snúa aftur í nýtt starf."

Slapp
banner
banner