Markið frábæra sem Kristinn Jónsson skoraði framhjá David James hefur ratað inn á heimasíðuna vinsælu 101 Great goals sem birtir frábær tilþrif og kostulega atburði úr boltanum.
David James hirðir auðvitað fyrirsögnina í fréttinni sem sjá má með því að smella hérna.
Það stingur þó í augun að sagt er að James leiki með liðinu "Sigurhringur IBV" en líklega má rekja þann misskilning til Youtube-myndbands af sigurhringnum sem Eyjaliðið tók eftir því að hafa lagt Blikana.
„Now 42-years-old, James recently joined Icelandic first divisioners Sigurhringur IBV to become assistant coach to manager Hermann Hreidarsson, and the first two rounds of the Úrvalsdeild season have seen the Englishman start in goal," segir í fréttinni.
James og félagar í ÍBV hafa farið vel af stað í Pepsi-deildinni og eru með sjö stig að loknum þremur leikjum. Liðið mætir KR á mánudag.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá markið sem Kristinn skoraði





