Heimild: Sky Sports
Knattspyrnufélagið Brighton hefur hafið rannsókn á því hvers vegna það fannst kúkur á gólfinu í klefa Crystal Palace þegar liðin mættust á heimavelli Brighton.
Þetta var síðari viðureign liðanna í undanúrslitum um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni og vann Crystal Palace leikinn með tveimur mörkum frá Wilfried Zaha.
Þetta var síðari viðureign liðanna í undanúrslitum um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni og vann Crystal Palace leikinn með tveimur mörkum frá Wilfried Zaha.
Gus Poyet, knattspyrnustjóri Brighton, var settur í bann eftir leikinn vegna ummæla í sjónvarpsviðtali, en skömmu síðar sendi hann starfsmönnum félagsins vefpóst.
,,Ég er reiður að einhver innan félagsins setji gott orðspor þess í hættu og leggist svo lágt," stóð í póstnum.
,,Hélt einstaklingurinn að þetta hefði áhrif á leikmenn Crystal Palace? Ef eitthvað þá kveikti þetta meira í þeim.
,,Einhver tók mjög slæma ákvörðun og ég held það sé kominn tími til að standa upp og taka ábyrgð á gjörðum sínum. Ekki bara sá seki heldur þeir starfsmenn sem eiga að sjá til þess að leikvangurinn sé öruggur staður fyrir alla."





