Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 08:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Ferguson: Beckham mun finna sér hlutverk í tískubransanum
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að David Beckham hafi valið rétta tímann til að leggja skóna á hilluna.

Beckham, sem er 38 ára, lék undir sjórn Ferguson hjá Manchester United í áratug og eftir farsælan feril hefur hann ákveðið að segja þetta gott.

Ferguson segir að nú getur hann einbeitt sér meira að tískubransanum, en í gegnum tíðina hefur hann verið ein heitasta undirfata fyrirsætan í bransanum.

,,Hann valdi rétta tímann," sagði Ferguson.

,,Eftir að hafa unnið deildina með PSG mun hann hafa nóg að gera. Ég get ímyndað mér að hann finni sér hlutverk í tískubransanum. Hann er ungur maður og mun klárlega hafa nóg á sinni könnu."

Þá gaf Ferguson sér tíma til að hrósa Beckham en hann vann meðal annars tíu meistaratitla í fjórum löndum.

,,Hann er ótrúleg persóna. Þegar hann fór til Ameríku þá bjóst enginn við miklu af honum. En hann hélt áfram og spilaði fyrir þjóð sína og fyrir AC Milan og PSG í Evrópu," bætti Ferguson við.

,,Hann hefur alltaf haft ótrúlegt þol. Hann gæti hlaupið í allan dag og það hefur leyft honum að vera áfram í leiknum og spila fyrir þjóð sína á fertugsaldri."
Slapp
banner
banner