Heimild: BBC
,,Þetta var ótrúlegt. Hann vann FA Cup, komst í úrslitin, annar í deildinni og vann deildina og það er ekki nógu gott?" sagði Sir Alex Ferguson fráfarandi stjóri Manchester United um brottrekstur Roberto Mancini úr starfi erkiféndanna í Manchester City.
,,Ég var hissa, en nei í raun ekki, það er ekki hægt að segja að maður sé hissa eins og sumir eigendur eru í dag. Það er ekki hægt að vera hissa en mér finnst þetta samt ekki hafa verið rétt ákvörðun."
Ferguson hættir eftir lokaleik Manchester United á morgun og við starfi hans tekur David Moyes sem stýrði Everton í 11 ár. Ferguson býst við að Moyes fái meiri þolinmæði.
,,Það sem gerist hjá Manchester City mun ekki koma fyrir David," sagði Ferguson.
,,Hérna er skipulag og hann er með reynslu. Hann varð að taka á hlutum hjá Everton sem eru líklega erfiðari. Ég held að það skipti engu. Ég tel að umfang félagsins verði það erfiðasta, hann mun fljótlega átta sig á því."
,,Þetta er alþjóðlegt vörumerki og við eru með marga styrktaraðila og hann verður að passa inn í það. Ég held að það verði samt ekkert stórmál og það mikilvægasta er liðið. Hann er með góðan leikmannahóp og mun vilja bæta við hann. Hann fær sínar eigin hugmyndir og það er gott. Hann mun gera vel."




