Freyr Alexandersson, annar af þjálfurum Leiknis, var alls ekki sáttur við sitt lið í dag. Leiknir og KF gerðu 1-1 jafntefli. Leiknir er með tvö stig eftir tvær umferðir en KF eitt.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 - 1 KF
„Við fáum alveg nægilega mörg færi til að vinna þennan leik en vorum bara lélegir. Það var ekki nægilega mikil gæði í því sem við vorum að gera. Þetta var bara lélegt,"
Freyr telur að rokið sem var meðan á leik stóð hafi hjálpað KF.
„Það bitnaði á því liði sem reyndi að spila fótbolta. Þeir fengu rok í dag og það hentaði þeirra leikstíl. Við eigum að vinna KF á heimavelli," sagði Freyr.
„Við byrjum á því að vera eins og fífl. Stöndum eins og vitleysingar og fengum mark á okkur eftir mínútu. Það vantaði einbeitingu. Menn komu eins og menn inn í leik í Njarðvíkurleikinn en vorum ekki á tánum í upphafi."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu í fyrra.






















