Eins og flestir vita þá fer fram úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu næstkomandi laugardag, en þar mætast þýsku liðin FC Bayern og Dortmund á Wembley í London. Leikurinn verður sýndur í þrívídd í beinni útsendingu í Smárabíó. Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Senu : http://www.sena.is/vaentanlegt/vnr/721.
Fótbolti.net ætlar að gefa tvo miða á leikinn í Smárabíó. Það eina sem lesendur þurfa að gera til að komast í pottinn, er að tippa á úrslit leiksins á facebook Fótbolti.net. Þátttakendur verða því að skilja eftir athugasemd undir frétt leiksins. Dregið verður næsta föstudag.
Smellið hér til að fara a facebook Fótbolti.net
Facebook fotbolti.net


