Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   lau 18. maí 2013 17:44
Anton Ingi Leifsson
Guðrún Jóna: Eru kannski algjörar gúrkur
Kvenaboltinn
Guðrún Jóna til vinstri.
Guðrún Jóna til vinstri.
Mynd: FH
,,Þetta var ekki nógu gott. Þetta er nátturlega alltof stórt, en á nokkrum köflum vorum við samt að spila vel, en þær refsuðu okkur bara fyrir mistök sem við gerðum," voru fyrstu orð Guðrúnar Jónu Kristjánsdóttur, þjálfara FH, eftir 7-0 tap gegn Stjörnunni í Pepsi-deild kvenna.

,,Ég er nátturlega ekki sátt með 7-0 tap. Það segir þó ekki alveg með allan leikinn og alla spilkaflana, en mér fannst við byrja leikinn vel. Það voru alveg á tímabili sem við vorum að spila, en því miður dettum við alltof mikið niður á köflum í leiknum."

Að minnsta kosti fjórir varnarmenn voru ekki með FH í dag, og síðan meiddust báðir miðverðirnir í leiknum sjálfur. Aðspurð hvort það væru eitthver álög á varnarmönnunum svaraði Guðrún Jóna: ,,Ég þarf eitthvað að fara yfir það. Þær eru kannski bara algjörar gúrkur," sagði Guðrún Jóna.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér í sjónvarpinu að ofan.
Slapp