Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalía - Leikur dagsins: Síðasti leikur Juventus á tímabilinu
Lokaumferð Serie A á Ítalíu hefst í kvöld með viðureign Sampdoria og Juventus klukkan 18:45.

Þetta er síðasti leikur beggja liða á tímabilinu en þau hafa um lítið sem ekkert að spila í kvöld, nema upp á stoltið.

Juventus er búið að vinna deildina en liðið er með níu stiga forystu á toppnum með 87 stig en eftir að hafa gert jafntefli við Cagliari í síðustu umferð á liðið enga möguleika á að bæta stigamet deildarinnar.

Sampdoria hefur bjargað sér frá falli en það yrði nú sætt að ljúka tímabilinu á heimasigri gegn ítölsku meisturunum.

Í kvöld:
18:45 Sampdoria - Juventus
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner