Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 07:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Jesus Navas lætur sig dreyma um Manchester City
Jesus Navas, leikmaður Sevilla, yrði spenntur fyrir því að ganga í raðir Manchester City sem sagt er hafa áhuga á honum.

Þessi 27 ára spænski landsliðsmaðurinn hefur allan sinn feril verið á mála hjá Sevilla en orðrómar eru uppi um að leiðir munu skiljast í sumar.

Navas er Heims- og Evrópumeistari með spænska landsliðinu en með Sevilla á hann erfiðara með að vinna titla og því vill hann ekki útiloka neitt.

,,Ég er tilbúinn fyrir hvað sem er," sagði Navas.

,,Ég vil halda áfram að þróast og berjast um titla því ég er vanur svo æðislegum hlutum, en ég er ánægður hér."

,,Áhugi City? Ég yrði spenntur fyrir því og get látið mig dreyma um það, en ég vil bíða þar til tímabilinu er lokið og sjá síðan til hvað gerist í sumar."

Slapp
banner
banner