Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 09:00
Fótbolti.net
Kristinn Kjærnested gerir upp enska boltann á X-inu í dag
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður stútfullur af flottu efni í dag en hann er á dagskrá milli 12 og 14 eins og alla laugardaga.

Kristinn Kjærnested, KR-ingur og sparkspekingur, kemur í heimsókn og gerir enska boltann upp með Elvari og Tómasi. Hver var besti leikmaður tímabilsins? Hver olli mestum vonbrigðum?

Kristján Guðmundsson, sérfræðingur þáttarins um Pepsi-deildina, rýnir í komandi umferð sem leikin verður á mánudag og þriðjudag.

Sveinn Elías Jónsson, fyrirliði Þórs, verður á línunni en Akureyrarliðið er án stiga og mætir öðru stigalausu liði í gríðarlega mikilvægum leik í næstu umferð.

Þá verður rætt við Hannes Þór Halldórsson, markvörð KR, sem fer til Eyja á mánudaginn og leikur við ÍBV.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @elvargeir og @tomthordarson.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Slapp
banner
banner