Roberto Mancini sem nýlega var rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester City keypti heilsíðuauglýsingu í dagblaði til að skila inn þökkum til stuðningsmanna liðsins.
„Þrjú ógleymanleg ár. Þið munuð alltaf eiga stað í hjarta mínu. Ciao, Roberto Mancini," stóð í auglýsingunni sem birtist í Manchester Evening News.
Mancini er í miklum metum hjá stuðningsmönnum City þrátt fyrir að leikmenn liðsins hafi ekki verið eins miklir aðdáendur ef eitthvað er að marka götublöðin.



