Búist er við því að Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, muni endurnýja samning sinn við félagið í næstu viku.
Ferdinand hefur verið hjá Manchester United í rúman áratug en samningur hans rennur út í sumar.
Þessi 34 ára varnarjaxl, sem vann nýlega sinn sjötta meistaratitil með liðinu, tilkynnti síðastliðinn miðvikudag að hann væri formlega hættur með enska landsliðinu, eitthvað sem var löngu tímabært að sögn Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra.
Nú getur hann einbeitt sér meira að félagsliði sínu en enn á hann eftir að fá nýjan samning.
,,Þetta er eitthvað sem hann hefði getað gert á síðasta ári," sagði Ferguson.
,,Að ljúka landsliðsferli sínum mun vissulega hjálpa honum, eins og það gerði fyrir Paul Scholes, og vonandi getur Manchester United grætt á því."

