Sandra María Jessen, leikmaður Þór/KA í Pepsi-deild kvenna, var að vonum ánægð með 4-1 sigur liðsins á HK/Víking í dag.
,,Þetta eru frábær úrslit og gaman að koma sterkt inn í þriðja leikinn. Við áttum ekki góða byrjun svo það var mikilvægt bara upp á sjálfstraustið að ná að vinna," sagði Sandra María Jessen við Fótbolta.net í dag.
,,Ég meiddist og er búin að vera frá í tvo mánuði. Gaman að fá að koma og spila núna, þetta var skemmtilegt og ekki verra að skora líka. Þannig að ég er mjög ánægð með þetta og liðið spilaði vel á köflum"
,,Við ætluðum að reyna að halda honum og sækja svo hratt á við og það gekk bara vel og skilaði sér. Það er mjög mikilvægt upp á andann í liðinu að fá fyrsta sigur og mjög góð þrjú stig og HK/Víkingur er mjög gott lið svo við erum ánægðar með þrjú stig."
,,Við erum allar að koma til og miklu erfiðara að koma inn í mótið eftir að hafa unnið mótið í fyrra, ekki eins auðvelt og í fyrra þar sem liðin höfðu ekki alveg jafn mikla trú á okkur en þetta er eitthvað sem við þurfum að takast á við."
,,Ég veit ekki alveg, aðallega formið sem er verið að pæla í. Ég finn ekkert til eins og er, en ég fæ staðfestingu á því í næstu viku. Ég vona að ég verði klár í 90 mínútur eftir þrjár umferðir."
,,Það er alltaf stefnan að komast á EM í Svíþjóð. Ég og Siggi Raggi vorum aðallega að tala um meiðslin og hvað er framundan hjá mér," sagði Sandra ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.






















