Heimild: Sporting Life
Sam Allardyce, einnig þekktur sem Stóri Sam, segist vilja halda Andy Carroll hjá West Ham eftir tímabilið og vonar að samkomulag náist sem allra fyrst.
Carroll kom til Hamranna á eins árs lánssamning frá Liverpool í ágúst, einu og hálfu ári eftir að hafa verið keyptur frá Newcastle á 35 milljónir punda.
Carroll kom til Hamranna á eins árs lánssamning frá Liverpool í ágúst, einu og hálfu ári eftir að hafa verið keyptur frá Newcastle á 35 milljónir punda.
Carroll hefur ekki spilað mikið á tímabilinu vegna meiðsla en eftir að hafa náð sér aftur hefur hann verið mjög góður og er hann meðal annars í landsliðshóp Englendinga fyrir næstu vináttulandsleiki.
,,Hann hefur sýnt öllum hvers hann er megnugur og er gríðarlega efnilegur og líklegt að hann verði að mjög góðum leikmanni haldi hann áfram að spila hér," sagði Allardyce við fréttamenn fyrir lokaumferðina.
,,Hann lærir mikið og er alltaf að bæta sig. Við getum hjálpað honum mikið en það er enn mikið eftir af viðræðum. Báðir aðilar verða að ganga sáttir frá samningsborðinu. Við vonum að viðræðunum ljúki sem fyrst."


