Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Þýskaland - Lokaumferðin: Úrslitaleikur og þrjú lið í fallhættu
Lokaumferðin í þýsku úrvalsdeildinni fer fram í dag og allir leikirnir hefjast á sama tíma klukkan 13:30.

Titilbaráttan er löngu ráðin en Bayern München er með 22 stiga forskot á toppi deildarinnar og heimsækir Mönchengladbach í síðasta deildarleiknum undir stjórn Jupp Heynckes.

Spennan er þó í hámarki bæði í fallbaráttunni og baráttunni um evrópusætin. Schalke og Freiburg spila hreinan úrslitaleik um sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar fyrir næstu leiktíð en aðeins einu stigi munar á liðunum í fjórða og fimmta sæti.

Eintracht Frankfurt á einnig stærðfræðilega möguleika á sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar, en til þess þarf liðið að vinna fimm marka sigur á Wolfsburg og treysta á að Freiburg og Schalke geri jafntefli.

Hamburger vonast þó til þess að Frankfurt tapi fyrir Wolfsburg, en takist Hamburger að leggja Bayer Leverkusen að velli færi liðið upp fyrir Frankfurt ef Frankfurt tapar fyrir Wolfsburg.

Þá eru þrjú lið enn í fallhættu. Greuther Fürth er þegar fallið en Hoffenheim, Augsburg og Düsseldorf berjast fyrir lífi sínu í dag. Hoffenheim er í verstu stöðunni en liðið er í næstneðsta sæti, tveimur stigum á eftir Augsburg og Düsseldorf.

Hoffenheim á líka erfiðasta verkefnið um helgina af þessum þremur liðum þegar liðið heimsækir Borussia Dortmund. Til að halda sér í deildinni þarf Hoffenheim að vinna leikinn og treysta á að Augsburg og Düsseldorf tapi sínum leikjum. Augsburg mætir Greuther Fürth en Düsseldorf heimsækir Hannover. Liðið sem endar í þriðja neðsta sæti, eða 16. sæti, þarf að spila um sæti í úrvalsdeildinni gegn Kaiserslautern sem endar í þriðja efsta sæti í næstefstu deild.

Lokaumferðin:
13:30 Augsburg - Greuther Fürth
13:30 Mönchengladbach - Bayern München
13:30 Borussia Dortmund - Hoffenheim
13:30 Eintracht Frankfurt - Wolfsburg
13:30 Freiburg - Schalke
13:30 Hamburger - Bayer Leverkusen
13:30 Hannover - Fortuna Düsseldorf
13:30 Nürnberg - Werder Bremen
13:30 Stuttgart - Mainz
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner