Talað um Allegri sem næsta þjálfara Roma
Walter Mazzarri hefur þegar komist að samkomulagi við Inter um að taka við þjálfun liðsins samkvæmt fréttum frá Ítalíu.
Talið er að hann muni tilkynna ákvörðun sína í dag.
Mazzarri hefur neitað að tjá sig um hvort hann muni endurnýja samning sinn við Napoli sem rennur út í næsta mánuði.
Talið er að Mazzarri muni taka með sér allt sitt starfslið frá Napoli til Inter. Inter mistókst að komast í Evrópukeppni og fær hinn ungi Andrea Stramaccioni ekki fleiri tækifæri.
Mikill þjálfarakapall er í gangi á Ítalíu en Massimiliano Allegri, þjálfari AC Milan, er sagður vera að taka við Roma.


