Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 19:09
Fótbolti.net
Umfjöllun: Hornfirðingar afgreiddu Reyni í síðari hálfleik
Gunnar Stígur Reynisson skrifar frá Höfn í Hornafirði
Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Sindri 2 - 0 Reynir S.
1-0 Hilmar Þór Kárason ('53)
2-0 Atli Arnarson ('80)

Reynismenn mættu með jakkafatalausan Atla, þjálfara, Eðvaldsson í broddi fylkingar til Hornafjarðar. Sindramenn vildu alls ekki missa stig í öðrum leik sínum í röð á heimavelli og Reynir vildu alls ekki keyra hátt í 600 kílómetra fyrir ekki neitt.

Reynir kom mun sterkari til leiks og voru heilt yfir hættulegri allan fyrri hálfleikinn. Færin létu standa á sér framan af, en Sindramenn voru þó heppnir að lenda ekki undir um miðjan fyrri hálfleik þegar þeir vörðu á línu eftir hornspyrnu Reynismanna. Sindramenn komust betur inn í leikinn þegar leið á, og undir lok hálfleiksins áttu þeir nokkur fín færi og voru nálægt því að koma inn marki.

Sindri kom einbeittari inn í seinni hálfleik og ætluðu leikmenn liðsins sér meira en í þeim fyrri. Boltinn gekk vel á milli manna og voru Sindramenn betri aðilinn strax frá byrjun seinni hálfleiks. Það voru svo liðnar 10 mínútur af hálfleiknum þegar Sindramenn þurstu upp hægri kantinn með einnar snertingar fótbolta sem endaði með fyrirgjöf inn í markteig þar sem Hilmar Þór Kárason sendi boltann í mark Reynismanna, 1 - 0.

Eftir markið skiptust liðin á að vera með boltann án þess að koma honum í markið. En á 67. mínútu hefðu Sindramenn geta komist í 2 - 0 þegar boltinn rúllaði fyrir framan autt markið en á einhvern óskiljanlegan hátt hitti Fijad Mehanovic ekki boltann. Mehanovic var svo stuttu seinna skipt af velli fyrir Atla Arnarson sem átti eftir að koma við sögu 10. minútunum síðar því á 80. mínútu bættu Sindramenn við öðru marki. Eftir gott spil af hægri kanti kom góð fyrirgjöf sem fyrrnefndur Atli Arnarson sendi viðstöðulaust í netið.

Eftir seinna mark Sindra var sem allt loft væri úr Reynismönnum. Sindramenn spiluðu boltanum sín á milli án þess að þeim væri ógnað.Þó komu ekki fleiri mörk í leikinn. Leiknum lauk því með sanngjörnum sigri Sindra 2 - 0 og gengu þeir því sáttir til búningsklefa að loknum en Atli Eðvaldsson hefur góðan tíma til að fara yfir hvað mætti betur fara hjá sínum mönnum á heimleiðinni.
Slapp
banner