Einar Már Þórisson skoraði þrjú
Ægismenn tóku á móti KV á iðagrænum Þorlákshafnarvelli í annarri umferð 2. deildar í dag. Bæði lið unnu sterka sigra í fyrstu umferð, Ægir sótti þrjú stig til Egilsstaða og KV sigraði HK. Það gat þó bara annað liðið unnið í dag og það var KV, en þeir voru heilt yfir töluvert sterkari aðilinn og unnu 0-4 útisigur.
Töluverður vindur var í Þorlákshöfn í dag, sem er eitthvað sem heimamenn eru alls óvanir, enda oftast logn í Höfninni. KV byrjaði með vindinn í bakið og létu hverja stórsóknina á fætur annarri dynja á Ægismönnum sem áttu fá svör við hröðum og hugmyndaríkum sóknarleik þeirra svarthvítu.
KV komst yfir með marki úr vítaspyrnu eftir að Arnar Freyr markvörður Ægis tók sóknarmann KV niður. Einar Már Þórisson fór á punktinn og skoraði af öryggi. Eftir það var sókn KV áfram þung og nokkur góð færi fóru í súginn. Ægismenn áttu í erfiðleikum með að sækja gegn vindinum og annað mark frá KV lá í loftinu. Það kom svo rétt fyrir leikhlé, þegar vinstri bakvörðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson átti stundusendingu sem framherji KV elti af miklum móð og ruglaði Arnar markmann í ríminu með því hlaupi og boltinn lak hægt og rólega inn fyrir marklínuna þrátt fyrir hetjulega tilraun Snorra Sigurðarsonar miðvarðar Ægis til að bjarga. 2-0 í hálfleik og óhætt er að segja að það hafi verið fullkomlega verðskuldað.
Meira jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik þegar Ægismenn léku með vindinn í bakið. Ægismenn urðu beinskeyttari í sínum sóknaraðgerðum en KV lék boltanum ennþá skemmtilega stutt á milli sín. Bæði lið áttu nokkur hálffæri og mikil barátta einkenndi leikinn áþessum tímapunkti og harðar tæklingar flugu um allan völl.
Á 80. mínútu flautaði Sigurður Óli Þorleifsson aðra vítaspyrnu leiksins á fyrir peysutog inn í teig eftir hornspyrnu KV. Virtist vera afar ódýrt og erfitt var að sjá frá hliðarlínunni hvað nákvæmlega var dæmt á. Leikmenn Ægis höfðu það á orði að ef þetta væri brot þá átti að dæma vítaspyrnu eftir hverja einustu hornspyrnu. Einar Már Þórisson fór aftur á punktinn og skoraði örugglega öðru sinni í leiknum. Eftir þetta koðnaði leikurinn niður og sigurinn var í höfn hjá KV. Þeir bættu þó um betur og Einar Már Þórisson fullkomnaði þrennuna í uppbótartíma með marki af stuttu færi eftir snarpa sókn.
Sanngjarn sigur KV staðreynd, en þeir virðast til alls líklegir í 2. deildinni í sumar.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |


