Valur 3 - 3 ÍBV
0-1 Þórhildur Ólafsdóttir ('10 )
1-1 Elín Metta Jensen ('19, víti )
2-1 Svava Rós Guðmundsdóttir ('25 )
3-1 Elín Metta Jensen ('59 )
3-2 Sabrína Lind Adolfsdóttir ('68 )
3-3 Vesna Smiljkovic ('89 )
Rautt spjald: Jón Ólafur Daníelsson ('90, ÍBV )
0-1 Þórhildur Ólafsdóttir ('10 )
1-1 Elín Metta Jensen ('19, víti )
2-1 Svava Rós Guðmundsdóttir ('25 )
3-1 Elín Metta Jensen ('59 )
3-2 Sabrína Lind Adolfsdóttir ('68 )
3-3 Vesna Smiljkovic ('89 )
Rautt spjald: Jón Ólafur Daníelsson ('90, ÍBV )
Það var boðið upp á nóg af mörkum er Valur fékk ÍBV í heimsókn á Hlíðarenda í dag, en gestirnir sóttu jöfnunarmark undir lok leiksins.
ÍBV byrjaði leikinn af krafti og komust gestirnir strax yfir á 10. mínútu. Þar var að verki Þórhildur Ólafsdóttir, sem er komin aftur heim en hún lék með Þór/KA á síðustu leiktíð er liðið varð Íslandsmeistari.
Elín Metta Jensen var þó ekki lengja að jafna metin. Hún skoraði þá af miklu öryggi úr vítaspyrnu. Svava Rós Guðmundsdóttir kom heimaliðinu yfir nokkrum mínútum síðar, en jafnræði var með liðunum í leiknum.
Staðan í hálfleik 2-1 Val í vil. Í byrjun síðari hálfleiks fékk ÍBV gullið tækifæri til þess að jafna, en liðið fékk þá vítaspyrnu sem Bryndís Jóhannesdótir tók en brást bogalistin og skaut í slá.
Elín Metta bætti við þriðja markinu fyrir Val á 59. mínútu eftir laglega sókn. Þetta var hennar sjötta mark í deildinni þegar aðeins þrír leikir eru búnir. Eftir markið sóttu gestirnir mikið og uppskáru mark á 68. mínútu.
Bryndís minnkaði muninn og bætti fyrir vítaspyrnuna á 68. mínútu. Eftir klafs í teignum tókst henni að koma boltanum í netið. Bæði lið fengu álitleg færi til þess að skora sjötta mark leiksins, en það datt ÍBV megin undir lokin.
ÍBV fékk þá aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn. Vesna Smiljkovic tók spyrnuna og smurði boltann hægra megin við vegginn og í netið, óverjandi. Undir lok leiks fékk þá þjálfari ÍBV, Jón Ólafur Daníelsson, rautt spjald, en hann mótmælti dómgæslu leiksins þar sem dæmt var brot þegar boltinn var ekki í leik.
Lokatölur á Hlíðarenda engu að síður 3-3. Valsstúlkur eru með fjögur stig eftir þrjár umferðir og sama má segja um ÍBV sem er einnig með fjögur stig eftir þrjár umferðir.



