Heimild: Sky Sports
Odilo Rodrigues, varaforseti brasilíska félagsins Santos, staðfesti að félagið hafnaði tilboði frá Barcelona í ungstirnið Neymar.
Í gær var greint frá því að Barcelona hefði komist að samkomulagi um kaupin á Neymar en Rodrigues segir að Real Madrid sé einnig á eftir honum.
Í gær var greint frá því að Barcelona hefði komist að samkomulagi um kaupin á Neymar en Rodrigues segir að Real Madrid sé einnig á eftir honum.
Rodrigues sagðist hafa spjallað við Sandro Rosell, forseta Barcelona, og Raul Sanllehi, yfirmann íþróttamála hjá Barcelona, en tilboð þeirra hafi ekki verið nógu gott.
,,Það er ekkert samkomulag, það eru viðræður í gangi, en við höfum ekki komist að samkomulagi," sagði Rodrigues við Radio A Xarxa.
,,Ég hitti Sandro Rosell og Raul Sanllehi í síðustu viku. Við áttum mjög heiðarlegt og beinskeytt samtal. Viðræðurnar verða að halda áfram því tilboðið var ekki nógu gott.
,,Við vitum að Real Madrid mun bjóða í hann á næstunni. Neymar mun velja milli liðanna sem hann vill, hans skoðun er mikilvæg."


