Heimild: Yahoo
Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, fer til New York í næstu viku til að gangast undir frekari krabbameinsmeðferð.
Annað æxli Vilanova á tveimur árum var fjarlægt úr hálsi hans í desember en hann er búinn að vera frá stóran hluta tímabilsins vegna krabbameinstengdra meina.
Annað æxli Vilanova á tveimur árum var fjarlægt úr hálsi hans í desember en hann er búinn að vera frá stóran hluta tímabilsins vegna krabbameinstengdra meina.
Félagið segir að Vilanova fái bestu mögulegu meðferð í næstu viku, en hann verður frá mánudegi til föstudags.
Vilanova átti að fara í þessa meðferð í sumar en ákveðið var að flýta fyrir henni eftir að Barcelona tryggði sér spænska deildartitilinn.
Vilanova var 10 vikur á spítala í New York til að ná sér eftir aðgerð fyrr á árinu.


