Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 18. maí 2015 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Borgunarbikar: Guðmundarnir sáu um KH
Mynd: Heimasíða HK
KH 0 - 3 HK
0-1 Guðmundur Atli Steinþórsson ('16)
0-2 Guðmundur Magnússon ('66)
0-3 Guðmundur Magnússon ('72)

KH fékk HK í heimsókn á Hlíðarenda í Borgunarbikarnum í kvöld og lauk leiknum með þriggja marka sigri gestanna úr Kópavogi.

Leikurinn var frekar jafn allan tímann þar sem gestirnir nýttu færin sín en heimamenn ekki.

Guðmundur Atli Steinþórsson gerði fyrsta mark leiksins snemma. Guðmundur Magnússon kom svo inná af bekknum og gerði tvö mörk í síðari hálfleik til að innsigla sigur HK.

HK er því komið í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins og er öllum leikjum kvöldsins í bikarnum lokið fyrir utan viðureign KFG og Árborgar í Garðabænum.
Athugasemdir
banner
banner