Andri Valur skoraði sigurmarkið á 79. mín. Hér sækir hann marki Árborgar í fyrri hálfleik. Mynd Þorsteinn Ólafs
KFG 2 - 1 Árborg
1-0 Bjarni Pálmason ('13)
1-1 Magnús Helgi Sigurðsson ('14)
2-1 Andri Valur Ívarsson ('79)
1-0 Bjarni Pálmason ('13)
1-1 Magnús Helgi Sigurðsson ('14)
2-1 Andri Valur Ívarsson ('79)
KFG tók á móti Árborg í Borgunarbikar karla í Garðabænum í kvöld og komst yfir snemma leiks með marki frá Bjarna Pálmasyni.
Gestirnir voru ekki nema mínútu að jafna og var jafnt allt þar til á lokasprettinum þegar Andri Valur Ívarsson skoraði sigurmark heimamanna á 79. mínútu.
Leikurinn var tiltölulega jafn samkvæmt tölfræði úrslit.net þar sem Árborg var meira með boltann og átti tíu marktilraunir, en aðeins tvær á rammann á móti sex hjá KFG.
Athugasemdir