Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 18. maí 2015 20:52
Ívan Guðjón Baldursson
Borgunarbikar: KV og Grindavík komin áfram
Óli Baldur gerði eina mark Grindvíkinga í leiknum.
Óli Baldur gerði eina mark Grindvíkinga í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV og Grindavík eru komin áfram í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir sigra gegn Ægi og Þrótti Vogum.

KV lagði Ægi af velli í Þorlákshöfn en bæði lið eru í 2. deild, á meðan Grindvíkingar í 1. deild rétt mörðu Þróttara úr 4. deild á heimavelli.

Brynjar Gauti Þorsteinsson, Ásgrímur Gunnarsson og Jón Konráð Guðbergsson gerðu mörk KV seint í leiknum gegn Ægi en Óli Baldur Bjarnason gerði eina mark Grindvíkinga á 82. mínútu.

Viðureign KH gegn HK er einnig í gangi og þá var viðureign KFG og Árborg að hefjast fyrir korteri.

Ægir 0 - 3 KV
0-1 Brynjar Gauti Þorsteinsson ('72)
0-2 Ásgrímur Gunnarsson ('75)
0-3 Jón Konráð Guðbergsson ('93)

Grindavík 1 - 0 Þróttur V.
1-0 Óli Baldur Bjarnason ('82)
Athugasemdir
banner
banner