Þrír leikir voru spilaðir í Borgunarbikar kvenna í kvöld þar sem Álftanes, FH og Fjölnir eru úr leik.
Augnablik lenti ekki í vandræðum með Álftanes, stjórnaði leiknum og uppskar auðveldan tveggja marka sigur.
Augnablik lenti ekki í vandræðum með Álftanes, stjórnaði leiknum og uppskar auðveldan tveggja marka sigur.
HK/Víkingur komst yfir gegn FH strax á fyrstu mínútu og þrátt fyrir mikinn sóknarþunga FH-inga tókst þeim ekki að jafna.
Ragnheiður Bjarnadóttir tvöfaldaði forystu heimamanna snemma í síðari hálfleik gegn gangi leiksins þar sem Hafnfirðingar sóttu í sig veðrið allan tímann.
Elva Björk Ástþórsdóttir gerði eina mark FH í leiknum en það kom of seint, eða á 89. mínútu.
Maren Leósdóttir gerði þá eina mark ÍA í jöfnum leik á Fjölnisvelli.
Augnablik 2 - 0 Álftanes
1-0 Steinunn Sigurjónsdóttir ('1)
2-0 Fanney Einarsdóttir ('33)
HK/Víkingur 2 - 1 FH
1-0 Rakel Lind Ragnarsdóttir ('1)
2-0 Ragnheiður Bjarnadóttir ('47)
2-1 Elva Björk Ástþórsdóttir ('89)
Fjölnir 0 - 1 ÍA
0-1 Maren Leósdóttir ('63)
Athugasemdir