Fram mun spila heimaleiki sína áfram á Laugardalsvelli út júní mánuð.
Framarar hafa undanfarin ár verið að flytja starfsemi sína í Grafarholt en þeir ætla að spila heimaleiki sína í framtíðinni á gervigrasinu í Úlfarsárdal.
Framarar hafa undanfarin ár verið að flytja starfsemi sína í Grafarholt en þeir ætla að spila heimaleiki sína í framtíðinni á gervigrasinu í Úlfarsárdal.
Ekki er búið að búa til stúku þar og því spila Framarar í Laugardalnum út júní meðan á framkvæmdum stendur.
Fyrsti heimaleikur Fram í sumar er á laugardag þegar liðið fær Fjarðabyggð í heimsókn á Laugardalsvöll.
Heimaleikir liðsins gegn Gróttu og Þrótti eru á dagskrá í júní og fara því einnig fram á Laugardalsvelli.
Athugasemdir