Andre Villas-Boas stýrði Zenit St. Pétursborg til sigurs í rússnesku úrvalsdeildinni í gær en liðið tryggði sér titilinn með 1-1 jafntefli gegn FC Ufa.
Ekki eru þó allir sáttir með Villas-Boas en Boris Chukhlov, fyrrum leikmaður liðsins, er allt annað en sáttur með leikstílinn.
Ekki eru þó allir sáttir með Villas-Boas en Boris Chukhlov, fyrrum leikmaður liðsins, er allt annað en sáttur með leikstílinn.
„Zenit spilar leiðinlegan fótbolta," sagði Boris um helgina.
„Þetta er lið fullt af stjörnum á vellinum en taktíkin er alltof varfærin."
„Þetta er anti-fótbolti sem snýst um að koma boltanum eins fljótt og hægt er á Hulk eða Danny."
Athugasemdir