Manchester United er búið að tilkynna að Hollendingurinn efnilegi Memphis Depay hefur staðist læknisskoðun hjá félaginu.
Félagsskipti Memphis hafa verið gríðarlega mikið í fjölmiðlum undanfarnar vikur enda gríðarlega eftirsóttur eftir magnað tímabil með Hollandsmeisturum PSV Eindhoven.
Félagsskipti Memphis hafa verið gríðarlega mikið í fjölmiðlum undanfarnar vikur enda gríðarlega eftirsóttur eftir magnað tímabil með Hollandsmeisturum PSV Eindhoven.
Memphis er 21 árs gamall og skoraði 22 mörk í 30 deildarleikjum á tímabilinu. Auk þess lagði hann 5 mörk upp og var 8 sinnum valinn maður leiksins, eða í um fjórða hverjum leik.
Þá skoraði Memphis þrjú mörk í sex leikjum í Evrópudeildinni og var einu sinni valinn maður leiksins.
Athugasemdir