Danny Ings, framherji Burnley, er ekki ánægður með skilaboð sem hann hefur fengið frá nokkrum stuðningsmönnum liðsins á Twitter.
Ings hefur raðað inn mörkum með Burnley undanfarin tímabil en þessi 22 ára gamli leikmaður hefur ákveðið að róa á önnur mið þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Sumir stuðningsmenn Burnley hafa tekið því illa.

„Það er lítill minnihluti stuðningsmanna að senda mér móðgandi skilaboð," sagði Ings.
„Þetta pirrar mig svolítið út af öllu sem félagið þýðir fyrir mig og eftir allt sem við höfum gengið í gegnum saman."
Athugasemdir