Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. maí 2017 22:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Crystal Palace verða að borga vilji þeir halda Zaha
Zaha vill fá töluvert hærri laun
Zaha vill fá töluvert hærri laun
Mynd: Getty Images
Crystal Palace þarf að grípa fram veskið ef félagið ætlar að halda Wilfried Zaha innan liðsins.

Zaha hefur verið einn sterkasti leikmaður Palace á tímabilinu en Tottenham hefur áhuga á Englendingnum unga.

Þessi fyrrum leikmaður Manchester United hefur gefið það út að hann vilji vera áfram hjá félaginu en hann hefur verið þar frá 12 ára aldri, að undanskildum tíma sínum hjá Manchester United.

Það mun þó kosta fyrir Palace því Zaha vill vera einn launahæsti leikmaður liðsins. Hann vill nærri tvöfalda laun sín upp í 100.000 pund á viku.

Tottenham hefur lengi haft áhuga á Zaha og reyndu þeir að fá hann síðasta sumar en þeir buðu 15 milljón punda í hann.

Zaha hefur skorað sjö mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur og gefið níu stoðsendingar og var hann einn lykilmanna Crystal Palace sem var lengi vel í fallsæti en er nú í 13. sæti.
Athugasemdir
banner
banner