Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 18. maí 2017 23:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Griezmann: Ronaldo vinnur ekki Ballon d'Or í ár
Griezmann telur að Buffon verði valinn besti leikmaður heims
Griezmann telur að Buffon verði valinn besti leikmaður heims
Mynd: Samsett
Antoine Griezmann var nálægt því að vinna verðlaunin eftirsóttu fyrir besta leikmann heims, Ballon d'Or í fyrra.

Það voru hins vegar tvö töp í úrslitaleikjum Meistaradeildar Evrópu og Evrópukeppninnar sem komu í veg fyrir það. Cristiano Ronaldo var í sigurliðunum í báðum þessum úrslitaleikjum og var réttilega valinn besti leikmaður heims.

Griezmann telur hins vegar ekki að Ronaldo verði valinn besti leikmaður heims annað árið í röð.

„Juventus mun vinna Meistaradeild Evrópu og þar með fær Gianluigi Buffon Ballon d'Or," sagði Griezmann.

Buffon hefur verið frábær hjá Juventus en hann verður fertugur í janúar. Juventus er nú þegar búið að vinna ítölsku deildina og þá er liðið komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem þeir mæta Real Madrid
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner